Mjög misjafnt er hversu mikinn tíma þarf í hvert verk. Það fer eðlilega mikið eftir umfanginu og einnig getu viðskiptavinarins að taka ákvarðanir. Sumir eru snöggir að ákveða sig, aðrir eru lengur að meta hvað megi fara og hvers þeir geti alls ekki verið án.
10% afsláttur fyrir einstæða foreldra og lífeyrisþega, gildir þó ekki um fyrsta viðtal.
Stærri verk er samið um sérstaklega. Kílómetragjald (110 kr.) bætist við ef unnið er utan höfuðborgarsvæðisins.
Innifalið í verðinu er viðvera og stuðningur við ferlið við að taka ákvarðanir. Skipulagsaðstoðin felst í því að styðja markmið viðskiptavinarins, sjá til þess að hlutirnir séu gerðir í góðri og skynsamlegri röð, aðstoða við framkvæmdina og að sjá til þess að dagsverkinu verði lokið á tilsettum tíma. Þjónustan er aðlöguð þörfum viðskiptavinarins hverju sinni.